me*myself

16.10.2008 10:29:46 / memyself

Össössöss...

Já góðann daginn gott fólk:)

Óvissuferðin gekk rosalega vel og var bara mjög gaman;)

Það var byrjað á því að mæta heim til einnar klukkan sextánhundruð,og þar var manni boðið upp á hvítvín...óáfengt var jú líka í boði en ég ákvað einhverra hluta vegna að fá mér hvítvínsdreitil8)

Svo var auðvitað í boði svona snarl til að narta í...og ótrúlegt en satt þá var Salsa-rétturinn rosalegi á boðstólnum,þetta er ekkert smá vinsæll réttur!

Rútan kom svo og hvítvínið tekið með8|,þá lá leiðin í Slakka,sem er dýragarður með meiru,mjög skemmtilegur staður:) hef einu sinni komið þangað áður,reyndar var það svona meira fjölskylduferð;)

En þar var skellt í sig einum bjór og farið í pútt-keppni,þá sá ég að gólf-námskeiðið sem ég hafði farið í sumar kom sér bara ágætlega8),vorum tvær og tvær saman.

Þaðan fórum við á endastöðina,á Hestabar upp á Skeiðum:lol: liðið var orðið vel hresst þá hehe!

Fengum mjög góða Gúllassúpu og heimabakað brauð sem var geggjað gott,eftir voru sýnd skemmtiatriði sem voru mjög fyndin...svona vinnutengd;) og einn sem spilaði fyrir okkur á hljómborð og söng8)

Mín fékk auðvitað verðlaun fyrir púttið:haha: og happdrættis vinning;)

(það fengu reyndar allir verðlaun...en smáa letrið skiptir aldrei máli! )


þetta var ofsa gaman og mikið hlegið:haha: ég hef reyndar komist að því að fólk sem er komin á þennann aldur...held að allir skilji alveg hvað aldur ég er að tala um;) séu jah ekki skárri allavega en þeir sem eru yngri þegar komið er að drykkju,það veltur upp úr þeim klámbrandararnir og allskyns sögur...sem eru reyndar mjög fyndnar:lol:

Heyrðu já aukavinnan:d mjög svo spennandi!

Er að byrja á föstudaginn, fékk vinnu hjá ISS,er þá að ræsta Ráðhúsið hér á Selfossi,ég og Þórey ætlum að taka það saman;) fínn tími byrja kl fimmhundruð og get farið þegar ég er búin...henntar mér vel og fín laun. og ekkert um helgar;) 

Hefði reyndar viljað frekar fá vinnu sem gefur svart en þá þarf maður að þekkja þennann sem þekkir þennann og svo framvegis:$

Og svo að lokum: Stelpur! var að spá hvort að við ættum að skella okkur í keilu saman áður en Salla fer heim?
Hvernig líst ykkur á það?

nóg í bili...bæbæ:)

» 14 hafa sagt sína skoðun

15.10.2008 11:19:27 / memyself

Góðann daginn.


Finnst þetta alveg maganaður kóngulóarvefur!

Það var æðislega flott að sjá fjöllin hér í kring þegar við fórum út í morgun,það hafði snjóað í gærkvöldi en samt ekki náð að snjóa í bænum sjálfum;)

Elva Katrín tók vel eftir þessu þegar við fórum út í bíl:)

Eigum við eitthvað að ræða það hvað er dýrt að útvega sér sakavottorð!:^) meina það sko...ég þarf semsagt að skila inn sakavottorði fyrir aukavinnunna sem ég er að fara í  og herlegheitin kostuðu mig 1.350 kall takk fyrir kærlega!

Finnst það nú frekar dýrt fyrir eitthvert blaðarusl með stimpil á...spurning hvort að fyrirtækið endurgreiði mér þetta þar sem að þau eru að biðja um þetta?

Prump!

Well well þurfti aðeins að blása hérna frá mér...eigið góðann dag:haha:

» 13 hafa sagt sína skoðun

13.10.2008 16:19:48 / memyself

Hlæ,hlæ,hlæ,hlæ,hlæ...

Góðann og blessaðann,

helgin var þessi fínasta:)

Við stelpurnar eyddum laugardagskvöldinu saman:haha:  höfðum það kósý í sófanum hjá henni Mörtu,horfðum á "Sex & the city" átum á okkur gat af Salsa-réttinum okkar og öðru góðgæti8| jammí!

**I love this moment's**

Ómægat! ég lenti í svo ferlega fyndnu atriði í dag í vinnunni...eða ég var meira svona vitni að ferlega fyndnu atriði:lol:...

ég og tvær aðrar samstarfskonur mínar vorum að koma úr mat og vorum að rölta niður stiga og vorum auðvitað að spjalla8) nema að ein okkar sem talaði hvað mest náði að detta niður nokkrar tröppur og það fyrir framan hana Hrund!!!

Mér brá auðvitað og spurði hana hvort hún hefði nokkuð meitt sig en hún var snögg upp og reyndi að hlæja að sjálfri sér...og þá kom hin sanna Hrund í ljós8)...

ég hló!
og hló,
og hló...

þegar svona hlutir gerast beint fyrir framan nefið á mér þá ræð ég hreinlega ekki við mig af hlátri....nema auðvitað ef fólk hefur virkilega slasað sig,en þetta er bara rúllandi í hausnum á mér í soldinn tíma eftir að svona atvik hefur átt sér stað...ég er með endurtekningar í kollinum mínum sem stoppa ekki :lol:

jebb that's me;)

Á miðvikudaginn er ég svo að fara í óvissuferð með vinnunni minni:haha: svaka spennó.

Og ég veit ekki enn hvað verður gert Marta mín...:lol: hehe

jæja ætla að hafa þetta gott í bili,er að fara að skoða nýju aukavinnunna mína;)

Adios!




» 12 hafa sagt sína skoðun

10.10.2008 17:07:02 / memyself

Söguleg stund.

Góðann daginn,

erum við ekki alveg komin með grænar af rigningu! Ómægat!

Ég átti æðislega stund með mínum bestu vinkonum í gærkvöldi, og það má eiginlega segja að þetta var sögulegur hittingur hjá okkur hehe:haha:

Ein af okkur býr í Dk og hún er stödd á landinu þannig að í gærkvöldi vorum við allar æskuvinkonurnar komnar saman...sem hefur ekki gerst í einhver ár,þori eiginlega ekki að fara með það hvað það er orðið langt síðan

Þetta var bara æði,það er alltaf svo gaman hjá okkur þegar við hittumst,skemmtilegt að rifja upp bæði gamlar og nýjar stundir...og plana í leiðinni;)

Við erum svona hópur sem hefur gengið í gegnum ótrúlega margt en náum samt alltaf að halda okkur saman...sama hvað gerist...það tel ég vera ekta.

Getum rætt alla hluti ef eitthvað er.

Ég öfunda sjálfa mig næstum þvi á að eiga okkur að...:lol:

Get samt ekki sagt að ég öfundaði mig í þeim sporum sem ég var í gær á leiðinni heim frá Hfj:s Tíminn leið náttla svo hratt að fyrr en varði var tíminn orðinn nótt
Það var bandbrjálað veður...lemjandi rigning,hávaðarok og þar að auki svarta þoka upp á heiði...glatað!

Og ég var aaalein:o

Þakkaði guði mínum fyrir það að það var bíll fyrir aftan mig.

Á svona stundu vildi ég óska þess að ég byggi í bænum...en annars ekki...jú líka þegar ég fer á djammið í bænum þá vildi ég oft að rúmið mitt væri þarna bara í 10mín fjarðlægð8)

Efast um að það verði eitthvað stórfenglegt gert núna um helgina...erum bæði að vinna...væri samt þokkalega til í "stelpukvöld" á laugardagskvöldið...leigja Sex&theCity ,pannta pizzu eða kínverskt og eiga fullt af nammi í eftirrétt;)

Væri það lovely!

Well well...hafið það gott um helgina:haha:

» 15 hafa sagt sína skoðun

06.10.2008 19:08:24 / memyself

Takk allir fyrir kveðjurnar:*

Gott kvöld,

hef reyndar voða lítið að segja...langaði bara að þakka fyrir kveðjurnar af fyrra bloggi:haha:

Við erum búin að skila af okkur íbúðinni...henni fylgir eiginlega mikill söknuður því okkur leið ofsa vel þarna:(
Hefði alveg viljað eiga hana ef að barna-herbergið(þvottaherbergið) hefðiu verið stærra;) þá hefði þetta virkað fínt.

Ég held að ég viti ekkert leiðinlegra núorðið heldur en að pakka niður og að flytja,gjörsamlega komin með grænar af því!

Enda ofsa ánægð að vera búin að kaupa mér mína eigin íbúð,þá þarf ég ekki að standa í þessu....jah...allavega ...kanski 5-6 ár..hver veit8)

Æ,ég nenni ekki meir...læt heyra í mér seinna;)

» 10 hafa sagt sína skoðun

25.09.2008 17:19:35 / memyself

Jebb! ðe rúmor is trú;)

Já góðann daginn:haha:

Haldið að sé,það er sól á Íslandinu og næstum því roklaust! jah þetta lífgar heldur betur upp á tilveruna gott fólk8)

Ég verð að deila einu með ykkur hérna,ég var í kringlunni um daginn...ótrúlegt en satt (ég sem gaf þá yfirlýsingu hérna um daginn að ég færi ekki í kringluna hehe...ég geri það samt ekki svona almennt skiljiði;)
En allavegana þá labbar framhjá mér maður og ég get svo guðsvarið það að þetta var stærsti  og þykkasti maður sem ég hef séð með berum augum8|

Ég ætlaði ekki að trúa þessu,hann var rosalegur! mér finnst þetta alveg út í hróa,hvernig getur fólk gert sér þetta?...við erum að tala um sko mann sem kæmist ekki einu sinni inn í venjulegann fólksbíl...eða ég veit bara ekki hvaða bíl hann kemst í...og það getur náttla ekki verið að hann labbi allt sem hann fer þar sem að það situr allt utan á manninum sem hann étur...ojjjj! mér finnst þetta viðbjóður!

Nóg um það:$

Þá er komið að góðu fréttunum;)

Ég og Ómar stóðum í ströngu síðastliðnu helgi við það að koma eitthvað af innbúinu okkar yfir til mömmu og pabba:o

Við erum semsagt búin að segja leigunni upp og flutt yfir til mö&pa:)...sem er voða næs bara:d og Elva Katrín voða ánægð að hafa alla undir sama þaki...aftur:lol:

Við nebbla fórum og skoðuðum íbúð hér á Selfossi...og versluðum'ana!!!

víííí við erum alveg ótrúlega happí yfir þessu:haha:

Loksins ekkert leigukjaftæði....komin með upp í kok af því:evil:

Vildi bara létta þessu af mér;)

sí ja!


» 22 hafa sagt sína skoðun

16.09.2008 19:36:21 / memyself

Þriðjudagurinn 16.september.

Gott kvöld :haha:

Helgin var með þægilegu ívafi:) við skelltum okkur í bíó með Tótu systur á myndina TROPIC THUNDER á föstudagskvöldið,ómægat hvað hún er fyndin,var svo viss um að þetta væri ein af þessum steiktu sem varla er hægt að brosa af fyrir rugli og vitleysu en shitt hún var sko fyndin...er enn að hlægja að atriðum úr henni:lol: love it!

Fórum svo í bæinn eftir að ég var búin að vinna á laugardaginn,í afmælið hjá Sóley Lilju og Mikael Daða,þar missti maður sig í góðgætinu hjá henni Láru;) "allt er leyfilegt í afmælum gott fólk" Elva fékk þá afmælisgjöfina frá Ernu  ömmu sinni og Edda,hún fékk latarbæjar-hlaupahjól sem er búið að vera í stöðugri notkun síðan á laugardagskvöldið:haha: síðan var okkur boðið í læri hjá mömmu og pabba um kveldið og sátum við þar eitthvað fram eftir í spjalli...sem gerist jah soldið oft hehehe8)

Ég ætla  ekki einu sinni að ræða veðrið hérna:^)það er svo hryllilega ömurlegt!!!

Ég er með eina kvörtun takk fyrir!

úff ég er svo yfir mig pirruð yfir þessu, ég fékk sent skilaboð frá landsbankanum um að ég væri komin yfir á kortinu mínu... debetkortinu sko,sem að b.t.w. ég hef ekki notað síðan um síðustu helgi!!! ég náttla hringi og spyr hvur djöfulls læti þetta eru í þeim og þá tilkynnir hún mér,daman, að ég væri komin heilar tvö þúsund krónur fram yfir heimild8| og mér fannst það nú ekki alveg passa þar sem að næg innistæða var fyrir vörunni sem að ég keypti þar síðustu helgi, og findist mér það mjög ósanngjarnt að ég þyrfti að borga einhvern "Fit"kostnað þar sem að það væri fyrirtækið sem ég verslaði við sem að innheimti alltof seint!

Þetta er sko ekki í fyrsta skiptið sem ég þarf að borga einhvern helvítis aukakostnað bara af því að verslanirnar taka ekki strax út af kortinu:evil:

Ég er sko ekki sátt með þetta og kjella sagðist skilja þessa reiði í mér og að það væru margir að kvarta yfir þessu en það væri bara ekki hægt að gera neitt í þessu nema að skilja alltaf eftir einhvern pening inná til þess að þetta komi ekki fyrir aftur....helvítis rugl ...er bara ekki að skilja hvernig þetta er hægt yfir höfðuð...og hvað þá þegar maður er með síhringikort:(

Já Hrundin fer sko á fund með bankastjóra á morgun...læt ekki vaða svona yfir mig hmmm8)

Var svo klukkuð af henni Bubbu;) læt það fylgja hérna með...

1. Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina.

Hrafnista,Hfj.
Heildsöluverslunin Gró,Rvk/
Vort Daglegt Brauð,Hfj.
Holtanesti,Hfj.

2.  Fjórar íslenskar bíómyndir sem ég held upp á.

Sódóma.
Með allt á hreinu.
Stella í orlofi.
Íslenski Draumurinn.

3. Fjórir staðir sem ég hef búið á.

Hafnarfjörður
Svíþjóð,Halmstad.
Danmörk,Ringsted.
Selfoss

 4. Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum.

Spánn.
Portúgal.
Frakkland.
Danmörk.

5. Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar.

Prison Break.
Greys anatomy.
Friends.
Medium.

6. Fjórar síður sem ég skoða daglega. ....skoða samt ekki alveg daglega.

www.myspace.com
www.barnaland.is
www.visir.is
www.blogcentral.is

7. Fernt matarkyns sem ég held upp á.

Humar.
Kjúklingur.
Stællinn.
Kínverskt.

 8. Fjórar bækur/blöð sem ég les oft.

Morgunblaðið
Fréttablaðið
Séð & Heyrt
DV

9. Fjórir staðir sem ég vildi helst vera á núna.

Spánn.
Portugal.
Miami.
Grikkland.

10. Fjórir bloggarar sem ég klukka.

Ragga;)
Þóranna;)
Geri tilraun á Mörtu;)
Lilja Ósk;)

og svo smá hér undir lokin:haha: ...

Uppfærð handbók starfsmannsins.

Reglur þessar taka nú þegar gildi.

Starfsmannafatnaður:

Það er ætlast til þess að þú komir klædd/ur  í vinnuna þína í samræmi við launatekjur þínar.
Ef þú mætir klædd/ur í 40 þúsund króna Prada strigaskóm eða er með 80 þúsund króna Gucci handtösku, gerum við ráð fyrir að þú sért á nógu góðum launum og þurfir alls enga
launahækkun.  Ef þú kemur fátæklega klædd/ur biðjum við þig að fara betur með peningana þína, svo þú getur keypt þér betri/fallegri föt.  Ef þú aftur á móti ert einhvers staðar þarna á milli ert þú sennilega á réttum stað og þarft enga launahækkun.

Veikindadagar:

Við tökum ekki lengur á móti læknisvottorðum. Ef þú getur farið til læknis og fengið hjá honum vottorð, geturðu alveg eins mætt í vinnu.

Aðgerð:

Uppskurðir/aðgerðir eru nú bannaðar. Svo lengi sem þú ert starfsmaður hérna, þarftu á öllum þínum líffærum að halda. Og ættir þess vegna alls ekki að láta fjarlægja neitt. Þú varst ráðinn með öll líffæri og ef það breytist á einhvern hátt er það brot á ráðningasamningi þínum.

Persónulegt leyfi fyrir utan orlofs.

Hvern launþegi fær 104 daga á ári til að sinna einkaerindum. Þeir dagar eru kallaðir laugardagar og sunnudagar.
 
Orlofsdagar:

Allir starfsmenn eiga að taka orlofsdagana síma á sama tíma á hverju ári. Þeir dagar eru
24 desember (e.hádegi)25 desember, 26 desember,  31 desember (e.hádegi) 1 janúar, skírdagur, föstudagurinn langi, annar í páskum, og frídagur verslunarmanna.  Og eftirtaldir dagar ef þeir bera upp á virkan dag.  1 maí og 17 júní.

Fjarvera vegna jarðarfara:

Það er ekki til nein afsökun fyrir því ef þú mætir ekki í vinnu. Það er ekkert sem þú getur heldur gert fyrir látna vini, ættingja eða samstarfsfólk. Reyna ætti af öllum mætti að láta aðra sjá um og mæta í jarðaför viðkomandi. Í sérstökum undantekningar tilvikum þar sem starfsmaður verður að mæta, skal jarðaförin tímasett seinnipart dags. Okkur er sönn ánægja að leyfa viðkomandi starfsmanni að vinna matartímann sinn upp í þær stundir sem hann yrði væntanlega fjarverandi.

Fjarvera vegna eigin dauða:

Þetta er líklega eina fjarveran sem við tökum til greina. Samt sem áður er ætlast til þess að starfsmaður gefi okkur alla vega tveggja vikna fyrirvara svo hægt sé að aðlaga og taka nýjan starfskraft inn í þitt starf.

W.C ferðir:

Allt of mikill tími fer í salernisferðir hjá starfsmönnum. Í framtíðinni  verður þannig hátturinn á að að nota stafrófið sem hjálpartæki. T.d nöfn sem byrja á "A" eiga að nota salernið frá 08:00-08:20, nöfn sem byrja á "B" frá 08:20-08:40 og svo frv. Ef svo óheppilega vill til að þú eihverra hluta vegna kemst ekki á salernið á umsömdum tíma verður þú að bíða næsta dag. Í algjörum neyðartilfellum, mega starfsmenn þó skipta út sínum tíma . Þá verður það að vera skriflegt og undirskrifað af ykkar verkstjórum.
Hámarkstími eru 3 mín, og ef þú ferð yfir þann tíma mun hringing fara í gang, klósettrúllan rúllast upp til baka, dyrnar verða opnaðar og af þér verður tekin mynd. Hún verður síðan sett upp á auglýsingatöflu öðrum til varnaðar.


Hádegisverðarhlé:

Mjög grannt fólk fá 30 mínútna hádegisverðarhlé, þar sem það verður að borða meira og líta betur út. Fólk í kjörþyngd fær 15 mínútna hádegisverðarhlé, og fær tækifæri á að borða sinn mat til að viðhalda góðri líkamsþynd. Feitt fólk fær 5 mínútna hádegisverðarhlé,  sem er fullnægur tími til að drekka Herbalife og taka inn megrunartöfluna sína.

Svo þökkum við ykkur fyrir tryggð við stofnunina. Við erum til staðar og reynum að skapa skemmtilegan og jákvæðan starfsmanna - móral. Þess vegna óskum við eftir því að allar spurningar, athugasemdir, áhyggjur, kvartanir, ásakanir, illska og leiðindi  verði beint eitthvað annað.




 



 


» 18 hafa sagt sína skoðun

12.09.2008 14:34:05 / memyself

Föstudagurinn.12.september.

Góðann daginn:d

Elva Katrín er orðin sú hressasta,finnur e-h aðeins til í hálsinum en er samt ekkert að kvarta yfir því..."vont að geispa" segir hún...segi nú bara "7,9,13 fyrir því að það muni ekkert breytast yfir í það verra!

Við eigum nebblast að mæta í afmæli til Sóley Lilju og Mikaels Daða á morgun:)

Veðrið er ekki það skemmtilegasta í dag:s eða jújú það er svosum í lagi,sólin er eitthvað að reyna að sýna sig en skýin tefja hana greyið:$

Við systurnar erum byrjaðar aftur í Pilatesinu,nú er það ekki Fit pilates heldur bara Pilates,og alveg sprenglærð gella sem er að kenna okkur:d Mér finnst þetta alveg mögnuð líkamsrækt!
Það er soldið meira kennt okkur í sambandi við öndunina í þessum tímum...sem truflar mig stundum...td. ef ég er að gera einhverja tiltekna æfingu þá fatta ég allt í einu að öndunin er ekki alveg í samræmi við æfinguna og þá fer ég að einbeita mér svo mikið að önduninni að hún sé rétt að ég gleymi hálfpartinn hvernig æfingin átti að vera...en þetta á eftir að venjast allt saman.

Er bara ekki þessi "öndunar-týpa"

Mmmmm...já:haha: fékk gleðifréttir í dag:haha::haha::haha: sem ég ætla mér ekki að opinbera alveg strax ;)...læt ykkur vita bráðlega:þ vibbííí´,þetta er æði!

well,well,tel þetta gott í bili8)

Knús og kossar !

» 11 hafa sagt sína skoðun

10.09.2008 08:55:12 / memyself

Getur maður verið latur við þetta...össöss!

Sæl veriði lömbin mín,

langt um liðið er það...;)

Ég sit hér heima með sárlasna skottu með ljósa lokka og himinblá augu sem glansa svo mikið að halda mætti að hún væri búin að vera fá sér svona nokkra sjússa yfir daginn,hún er búin að vera lasin síðan á sunnudaginn,skall bara allt í einu á þessi svaka hiti...ekki spennandi:cry: en sem betur fer þá höfum við ekki þurft að kynnast þessu of mikið frá Elvu,hún er alveg ótrúlega hraust...*mont*mont*

Tímasettningin er ekki alveg að virka fyrir þessi veikindi þar sem að okkur er boðið í tvenn barna-afmæli í vikunni8| annað á fimmtud. og hitt á laugard. Krossleggjum fingur um skjótann bata:haha:

Mikið tekur maður eftir haustinu,það er orðið skítkalt úti:whut: þoli ekki þennann kulda,skíta rigning og rok,allt þetta græna breytist í gult...já eða jafnvel grátt:evil:...þó svo að stundum komi upp fallegt haustveður,finnst reyndar líka voða kósý þegar fer að dimma að geta kveikt á kertaljósum og rómantík;)

Mig langar bara á sólarströnd! sem er ekki nýtt að heyra frá mér8) öfunda Elísubet vinkonu sem flatmagar í sólinni núna á Spáni:o

Ég ætla á sólarströnd næsta sumar...

talandi um næsta  sumar,held ég sé búin að planleggja of mikið fyrir það:lol: en það er seinni tíma vandamál...alveg 7.mánuðir í það.

"Hakúnamatata"

Ég var að spökulera í einu um daginn,þar sem að ég er að vinna á elliheimili þá hlusta ég mikið á tónlist þeirra tíma í vinnunni,svona eins og harmonikkutónlist og þið getið bara ýmindað ykkur hvað ömmur ykkar og afar hlusta á þannig lagað...þetta er allavega ekki músik sem ég mundi kjósa í bílinn hjá mér eða til að hafa ánægju af...mér finnst þetta samt ekkert endilega slæmt að hlusta á ,bara ekki mitt8)
Og þá kemur að pælingunni : Hvað skal ég vera að hlusta á þegar ég er komin  á þennann aldur??

því að músikin í dag er svo mikið allt öðruvísi heldur en þegar amma mín td.var ung.

Ég er samt alveg komin með nokkur bönd sem ég gæti hugsað mér að smella á tóninn þegar þar að því kemur,til að minnast  æsku minnar;)

Ég verð "techno-amma"8)...neinei;)  mikið ofsa hlakkar mig til að vera komin á þennann aldur:haha:

jæjajá...ætla að fara að hjúkra frökenini,endilega haldið áfram að vera dugleg að kvitta;)

Hafið það gott!

» 11 hafa sagt sína skoðun

18.08.2008 20:06:39 / memyself

Mánudagurinn 18.ágúst.

Já góðann daginn gott fólk...eða réttara sagt,gott kvöld:haha:


Helgin bara búin að vera nokkuð góð hjá mér og mínum,sund,2x bæjarferðir,göngutúr,ísbíltúr og bara nefndu það...


talandi um bæjarferð,fórum semsagt á laugardaginn í bæinn aðalega fyrir Ómar,þar sem honum langaði að bæta inn í fataskápinn sinn,um leiiið og við vorum lent í Smáralindina...(fer ekki í kringluna b.t.w) ...þá byrjaði tuðið í'onum,þannig að þetta leit út eins og ég hefði gjörsamlega dregið hann inn fyrir dyrnar í Smáralind bara fyrir mig!  ehehen neihei gott fólk þetta var eingöngu hans hugmynd takk fyrir.

Hann er líka soldið gjarn á að vera búinn að ákveða að hann finni ekkert...efnið er ekki rétt,hettan er eitthvað skrýtin,peysan verður pottþétt ónýt eftir einn þvott,"djöfulls bumba" og  svona allskonar skemmtilegir orðaleikir:$

Enn þetta hafðist fyrir rest og kjellinn keypti þessi fínu jakkaföt,þar sem honum hefur alltaf langað til að eignast jakkaföt,og eru rosa flott...og ekkert fermingaleg;)


Mamma og hele familien koma á eftir,mar er pínu spenntur að hitta þau!:lol:

Svo er bara nóg að gera framundan,Ragga vinkona er að koma frá Dk í heimsókn til Íslands og er hún búin að bjóða okkur á Glauminn á laugardaginn í partý,hlakka ofsa til að hitta hana:haha::haha: og svo er  okkur einnig boðið til Gulla og Öldu í teiti ...jibbííí hlakka bara til laugardagskvöldsins,já og það er auðvitað Menningarnótt...bara fjör!

Næstu helgi verður svo Sálin hans Jóns míns að spila á 800Bar á Selfossi!!!!!!:haha: eigum við að ræða það eitthvað össöss verður svaaaðalegt gott fólk og þá er ég auðvitað búin að bjóða Skvísunum mínum að koma til mín á ball og alles jiminn tilhlökkunin ein er rosaleg!

nenni ekki að blogga meir,ætla að tékka hvar fókið mitt er staðsett á landinu;) og endilega að kvitta! þó að það sé ekki nema bara " hæ,bara kvitta;)" eða eitthvað...það voru 71 sem komu inn á í gær og ekkert KVITT:whut:

» 16 hafa sagt sína skoðun

15.08.2008 14:53:58 / memyself

Sólríkur föstudagur...

8)Sumarið hefur bara verið alveg sérlega gott,ég man allavega meira eftir björtum dögum frekar en gráum...yfirleitt er það öfugt,að manni hafi fundist vera rok og rigning eiginlega allt sumarið og það hafi bara ekkert sumar komið!


En ekki í þetta skiptið:)


Hugsið ykkur,ég er í svo góðu vaktarfríi akkúrat núna að ég gæti alveg eins kallað þetta sumarfríið mitt;) verð í fríi,föstud,laugard,sunnud og mánud.


Haldið að sé lúxus á minni ha:haha:


Talandi um luxus...þá fékk ég þessa rosa luxuxmeðferð í gær, fór á snyrtistofuna Myrru á Selfossi og fékk mér andlit,þ.e.a.s. vax og litun á augabrýr gott fólk...ég var alveg pínu stressuð þar sem að ég hef alltaf farið til þeirra sömu í 3 ár:$ á meira að segja pantað hjá henni í næstu viku en ég beit á jaxlinn og hún gerði þetta líka svona ljómandi vel og var ég vel sátt með þetta,fékk höfuðnudd og alles! eigum við að ræða það hve þvílíka nautn þetta var...gjörsamlega lamaðist í stólnum hjá henni...ég ætla mér að vera þá bara hjá henni Brindýsi í Myrru en langar líka að vera hjá Hrund í Lipurtá þannig að ég kannski  fer svona annað slagið þangað;)

Ég og Tóta skelltum okkur í bæinn áðan,kíktum í JUNIFORM,sem er verslun með íslenska hönnun eftir Birtu Björnsdóttir,þetta er bara truflað sem hún gerir! en var pínu vonsvikin með búðina og Tóta líka,héldum að það væri alveg slatti hjá henni til að skoða en þá voru þetta frekar eins og sýnishorn:$ en fann mér samt jakka8) geeeeðveikann!!! kostar bara 35þúskjell...hann er samt geðveikur.

Haldið ekki að hún druslan,þvottavélin mín! sé ekki biluð:evil: vá hvað það er alveg frekar þreytt dæmi þegar  svona hlutir bila,hún er 4 ára gömul og ég finn ekki ábyrgðarskirteinið af henni til að tékka hvort að hún sé enn í ábyrgð??

þetta reddast eins og allir skapaðir hlutir í kringum mig...þýðir ekki að vola.

Mamma,pabbi,Tóta,Eiki,Björg,Sighvatur,Hanna Run og Halldóra eru öll að fara austur á Egilstaði,mig langar svo mikið með og kíkja á Ásu vinkonu á Eskifirði en hann maðurinn minn nennir ekki að keyra þetta:( isspiss!!!

jæja ætla að fara að gera eitthvað að viti hér,læt heyra í mér fljótt aftur8)

» 7 hafa sagt sína skoðun

12.08.2008 17:02:00 / memyself

Gleym mér ei,gleym mér ei,gleymdu mér ei...

Sæl veriði:haha:

veit ég er búin að vera hörmulegur bloggari:s málið  er barasta það að lyklaborðið hans Ómars var ekkert að virka fyrir mig þangað til að hann tilkynnti mér það að ég gæti breytt stöfunum í íslenskt í staðin fyrir enskt:$ til dæmis náði ég ekki að rita bókstafina: ð,æ,ö,þ og allt sem þurfti að vera með kommu yfir eins og: á,í,ó og  svo framvegis...sho þar hafiði það;)

úff, veit reyndar ekkert hvað ég ætti að segja í dag...fékk bara einhverja þörf fyrir því að láta vita af mér:lol:

Hef verið að velta því fyrir mér soldið hvort að það sé einhver ...æ...kann ekki alveg að útskýra þetta,mikið auðveldara að hugsa þetta með sjálfum sér hehe en allavega er að pæla td. í gegnum lífið,þá er ég að meina eftir grunnskóla sko;) þá fer maður í skóla eða fer að vinna og þú kanski skiptir um vinnu á lífsleiðinni og einnig skóla,ferð á allskynns námskeið og bara allstaðar sem maður er að kynnast fólki, yfirleitt þá hef ég eignast vinkonu eða vin þar sem ég hef unnið,farið á námskeið,í skóla og gegnum aðra vini og solleis og maður heldur miklu sambandi við þær manneskjur á þeim tíma  skiljiði en svo dafnar sambandið oft þegar viðkomandi hættir eða fer e-h annað en þó maður hafi ekki verið duglegur að hafa samband þá hugsar maður oft til þeirra sem maður hefur kynnst....

og þá kemur að hugleiðingunni minni....

hvort að það sé einhver tilgangur með því...eða sko...hvort að þetta hafi verið fyrirfram ákveðið að ég td. átti að hitta þessa manneskju?

og að kanski átti maður að vera duglegri að hafa samband eftir að það fór að dvína?

kanski átti þessi manneskja eða mun þessi manneskja vera miklu stærri partur af lífi þínu ...þið vitið...þarft á henni að halda

:$ jiminn eini þið eruð örugglega ekkert að botna í þessu! haha þarna kemur það bara fram hvað maður getur verið ruglaður ef maður er svona einn með sjálfum sér hahaha :lol:

held líka að það sé ekkert hægt að svara þessari hugleiðingu minni.

látið heyra í ykkur gott fólk!


» 14 hafa sagt sína skoðun

06.07.2008 17:44:01 / memyself

Jebb ég er hér enn,vibbí!

Góðann daginn,

Sumarið er hálfnað,eru þið að trúa því? tíminn alltof fljótur að líða!:$

Get nú samt ekki sagt annað en að það sem er búið af sumrinu hefur bara verið skemmtilegt

Við erum í því að fara í fjöruferðir annaðhvort á Eyrabakka eða á Stokkseyri sem er voða þægilegt,fara með nesti og sulla í vatninu;)
Við fórum um síðustu helgi á Eyrabakka að skoða húsið sem að langa-langa afi minn byggði árið 1910 eða 1912 ,Gunnarshóll,og amma fæddist og ólst upp í,bara æðislegt hús og auðvitað búið að gera það eitthvað upp...það er buið að útbúa nokkurskonar markað á Eyrabakka,sem að minnir helst á Kolarportið nema við sleppum við lyktina hahaha:lol: við fengum okkur bestu vöfflur ever á kaffihúsinu þar...er enn að hugsa til vafflana jammí!  um kveldið var svo brenna á Eyrabakka,það var  mikið líf og fjör þar,allir að syngja og svaka stemmning:haha:

Við Elva Katrín erum búnar að vera svaka duglegar að fara í sundlaugina hér,enda elska ég þessa sundlaug,hún er svo þægileg og sérstaklega þá til þess að vera með börn í;) þó svo að sturtu aðstaðan sé ekkert æðiss...hún er svona frekar "rass við rass" ef þið skiljið hvað ég meina hehehe! en mar er ekkert feimin við það gott fólk;)

Og já til að nefna það þá er maður byrjaður að rækta líkamann aftur8) múahahaha! ég og Tóta skelltum okkur í Fit Pilates sem að ég mæli svo þokkalega með,bara magnað! og ég meina það!....ætla mér að halda mig við þetta:) og skokkið er byrjað líka...ég er alveg að tækla þessa leti í mér:haha:

Og vitir menn,haldið ekki að ég hafi skellt mér á byrjenda námskeið í Gólfi! jahááá ég veit! ótrúlega eitthvað sem ég hefði aldrei ætlað mér,hef alltaf kallað þessa íþrótt bara fyrir þunglynda en ég og Ómar skelltum okkur saman,Ómar hefur alltaf langað til að fá smá kennslu bara til að vera viss um að hann sé alveg að gera réttu hreyfingarnar og beita sér rétt,þar sem að hann hefur þennann þvílíka áhuga á þessu;) en ég er voða stolt af sjálfri mér:haha: ég ætla að reyna að fá mér bara eitthvað notað sett,tími ekki að splæsa í nýtt sett fyrir mig þar sem að ég veit ekki alveg hvað gólf áhuginn hjá mér nær langt;)

Það var *Skvísu-hittingur* hjá okkur æsku vinkonunum í júní sem var ææði,það var rosa gaman að hitta stelpurnar enda mjööög langt síðan að við höfum farið e-h og skemmt okkur;)...þetta var eitt af þeim kvöldum sem að maður vill ekki að taki enda,er strax farin að hlakka til næsta hittings girls!!!

Elva Katrín er komin í sumarfrí á leikskólanum,en henni gengur rosalega vel þar og er ánægð með lífið:d

í gærkvöldi var okkur fjölskyldunni boðið í grill-garð-partý hehe hjá Ara bróður mömmu,það var rosa gaman og voru flest öll systkynin hennar mömmu líka,Elva og Hugi fengu að vera í heita pottinum að busla,sem var alveg ´rosalegt fjör! Jóhanna var grillmeistarinn og sá um að dæla í mig Mohito...sem var hreint út sagt alltof gott skal ég segja ykkur,það var komin varðeldur og ég veit ekki hvað og hvað þetta var bara æði,enda veðrið æææðiss! hefði ekki getað verið betra enda sátum við þarna úti til tvö:haha:

en jæja held að þetta sé orðið ágætt...má ekki verða of mikið sko;) verið dugleg að kommenta,bið að heilsa ykkur að sinni.

» 12 hafa sagt sína skoðun

21.05.2008 07:41:38 / memyself

Góðann daginn!

Ég er að hugsa um að fara í sumarfrí f´rá blogginu...enda orðin alltof löt við að rita hér inná:s þanniig að ég verð ein af þeim sem skoðar bara blogg hjá öðrum;)

Barnalandssíðan verður samt áfram virk:haha:

Sé ykkur...kv,Hrund

» 10 hafa sagt sína skoðun

18.05.2008 20:28:33 / memyself

Já, góða sumarkvöldið gott fólk!

:haha: finnst ykkur ekki æði þegar sumarið er komið?

Ég hreinlega elska þegar maður sér að það er allt farið að grænka og blómin að springa og graslyktin ummmm... það eitt minnir mann á sumarið:)

Var að tala við Salalá vinkonu hér rétt áðan,við vorum að ræða það að það yrði sko alveg tilvalið að koma til þeirra í endann ágúst og vera hjá þeim yfir Víkinga hátíðina;) þannig að ég ætla mér að fara að safna og bjóða litlu fjölskyldunni minni út í ágúst hahaha!

En þetta er ekkert ákveðið samt þannig að slökum á kæru vinir og vandamenn;)

Danmörk kallar ekkert á mig skal ég segja ykkur,nema þá bara í svona heimsókn og alltaf gaman að fara út fyrir landssteinana skiljiði,margir sem spyrja mig að þessu,hvort að ég sjái ekki eftir að hafa ekki verið úti yfir sumarið?

Neibb,ekki neitt!

Sá fram á að ég yrði gjaldþrota eftir sumarið hahaha:lol: nei í alvöru,ef þið pælið í því þá voru ofsa margir sem ætluðu sér að koma og heimsækja okkur út í sumar,sem mér fanst b.t.w æði sko! en fólk er að koma svona yfir sumartímann og eru helgi,viku eða 2.vikur og ...svona endalaus umferð og það vilja auðvitað allir gera eitthvað,fara í garðana,út að borða og svona skemmtilegheit,maður vill þá auðvitað fara með þeim sem eru í heimsókn hjá manni og öfugt,þá er ég ekki að tala um að ég færi á hausinn á því að ég héldi að ég ætti að halda liðinu uppi á fæði og þvíumlíkt,alls ekki! heldur það yrði bara svo mikið sem maður væri að fara með hverjum og einum við hverja heimsókn og þá telja peningarnir auðvitað8|

Veit um konu sem lenti einmitt í þessum pakka en hún var nú fljót að taka á þessu...enda var heimilið hennar orðið liggur við að hóteli og hún orðin þerna á sínu eigin heimili haha!!!

Tek það nú samt fram að ég ákvað ekki að fara heim fyrir sumartíman af þessum ástæðum haha:lol: enda engann vegin að hugsa um þetta.

Gjjuuuuð ég verða ð deila einu með ykkur hér!

þar sem ég hef verið að upplýsa ykkur um það hversu mikill meistarakokkur ég er orðin8) þá ákvað ég að hafa þennan forláta grjónagraut í matinn sem er keyptur tilbúinn nema það þarf auðvitað að bæta við vökvanum;) hann var búin að dúsa í svo langann tíma þarna upp í skáp og ég nennti ekki að fara elda þannig  að þetta var ofsa sniðug lausn og ætti ekki að geta mistekist þar sem að þetta er 99% tilbúið í pakkanum!

Það eina sem ég átti að gera var að bæta við 7,5dl af mjólk og hræra en neiiiii Hrund gáfaða henti í pottinn 7,5dl af vatni!!! í alvöru þetta hefði hreinlega ekki getað verið einfaldara en ég gat klúðrað því:^)

En við fleygðum grautnum ekki neinei ég addaði smá mjólkurdreitil í þetta og henti yfir kanillsykriog við borðuðum þetta bara með ágætislyst8)

Verð samt að viðurkenna það að ég er einhvervegin ekkert hrifin af því að kaupa svona pakkamat...eða tilbúinn mat,nema jú ef það stendur á því KFC eða American Style;) en það er út að borða það er ekkert það sama.

Það verður svaka fjör hérna á föstudaginn 23.maí,þá verður litla snúllan mín hún Elva Katrín 4.ára og það verður sko haldin afmælisveisla,jibbí!

Hlakka voða til!

Jiiiii ég hélt ég myndi andast í gær,það voru allir hérna á Selfossi á leiðinni á Skímó ballið í Hvíta húsinu,og þar af leiðandi var auðvitað partý um allann bæ hehe!
Það var við hliðina á okkur og fyrir neðan og ÓMÆGAAAT! það var svo gaman hjá liðinu að ég var að deyja mig langaði svo að mæta þarna og bara "party on!"

Það var spilað á gítar og allir að syngja og svo ótrúlega gaman hjá  þeim eitthvað að ég var farin að iða hérna heima hjá mér! sjétt sko!

En mínz var á vinnuhelgi þannig að það var ekkert tjútt á minni...mæti sko þokkalega í næsta partý...þó ég þekki þau ekki ekki neitt8)

jájá held að ég sé búin að bulla nógu mikið núna um akkurat ekki neitt held ég bara phiff!

hafið það gott píps:d

» 14 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 12
Klukkan
Heimsóknir
Í dag:  18  Alls: 63148
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1410 dögum
Koma Ómar og pabbi heim!
RSS tengill